Okkar fýsísku penslar
Dagatal
janúar - 2012
S M Þ M F F L
1234567
891011121314
15161718192021
22232425262728
293031
FyrriNæsti
06.02.2008 19:38:21 / littleb

Vinsælasta síða allra tíma..............

..................eða þannig.

 

Átti mjög súrealíska stund í Sundhöllinni, alias pervertalauginni, í morgun...........bla bla bla bla....................punchline-ið: Fyrst þú ert svona mikill maniac!...............lol.

 

Legg til að þetta verið út í hött síðan okkar.  Ekkert sem er skrifað má meika nokkuð sense.


» 2 hafa sagt sína skoðun

30.11.2007 19:48:50 / littleb

JÓLIN ERU AÐ KOMA!

 
 
Gleðilegan desember girls! 
 
 
 
Jólatré

» 0 hafa sagt sína skoðun

16.02.2007 12:12:58 / water

Þorri vinur vors og kjamma

Sælar sælar sælar

jamjamjam (jarmjarmjarm) komið er að blótum hér og blótum þar, blótum aðallega í Danmöruku.  Jei, hér er blót um helgina og Bryna og ÁRni eru mætt til að blóta með.  Svo koma tengdó í kvöld til að passa (auðvitað!!  míhí). 

Við Árni erum komin í okkar venjulega "spekúler-mode" og spáum og spekúlerum í hinu og þessu, allt frá unglingavandamálum og eiturlifjum yfir í flugöryggi og aftur í fækkun sæðisfruma hjá karlmönnum...  hehe, alltaf gaman hjá okkkur.  Við erum svo miklir spekingar. 

Annars er ég bara í einhverju cocoon hérna, gerist ekkert=ekkert að frétta.  Eina sem ég hef að segja eru barnafréttir og aftur barnafréttir.  (hann er bara svo æðislegur Loginn minn!)  það er svoooo gaman að honum og honum finnst ég svooo fyndin, jei! loksins, einhver!

jæja, ég ætla að gera mig klára í að fara að koma salnum í stand, Ballið annað kvöld og formaðurinn alveg að farast úr stressi, hringjandi í tíma og ótíma út af akkurat engu.  Salurinn verður vonandi að mestu til í dag svo lítið þurfi að gera á morgun.

eníveis.  bæjó í bili

Ýra vampíra

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

27.01.2007 17:20:05 / teas

Stóra beltið ..

Jæja stelpur.. allir glaðir ?
Hrafnhildur á HM .. er gaman ?
Thelma í sundi eða á bakvakt ?
Anna þunn ?

Hvað er að frétta.. ?
Þið vitið allt um mig.. því SUMIR BLOGGA !
mjá mjá.

kv. Elva flögg

» 1 hafa sagt sína skoðun

17.12.2006 13:12:40 / teas

Áframhald á jólamynda samtali..

Hæ hó.
Að nokkur maður skuli láta bjóða sér þetta helv.. comment kóda krapp is beyond me !
Er búin að reyna 20 X að commenta á síðustu færslu.
Án árangurs..
Ætla því bara að koma því inn hér.


Við Atli erum so far búin að horfa á : Love actually (í gær)
Atli var aldrei búin að sjá hana þanniga að það var voða gaman að horfa á hana með honum.. mér fannst hún aldrei neitt sérlega spes en hún venst alveg ótrúlega með árunum..

Bad Santa Er auðvitað bara snilld.. enda Cohen bræður þarna við stjórnvölinn.


Við Thelma byrjuðum á að horfa á "Scrooged" en gáfumst fljótt upp.. mjög lélegur pappír verð ég að segja)

Við Anna og Gústi Gilli horfðum á Disney's scrooge með Mikka mús og Aðalöndinni)

Eigum eftir: Christmas vacation ,


Just friends ( á að gerast um jólin.. var búin að ákveða að gera hana að jólamynd)

It's a wonderful life, hef nú ekki lagt það í vana minn að horfa á hana.. en Atli er búin að verða sér út um hana þannig að á hana verður horft nú..


Grinch,  er aðeins of væmin fyrir minn smekk.. svoldið of Amerísk ef þið skiljið hvað ég á við en Jim Carrey er alltaf góður.

og toppurinn verður auðvitað Christmas story.


Gaman gaman.
Svo er planið að vera búin að ná mér í æðislega þýska jólamynd sem heitir "Das Ewige lied" og er um "Heims um ból lagið"
Sá hana e-tíma á RUV með mömmu og pabba og við vorum öll grátklökk eftir hana.
Ýra ef þú sérð hana á þínum mörgu ferðum um Germaníu þá máttu alveg hafa mig í huga ;)


Jæja nóg komið í bili.
Njótið vel og hafið það gott :haha:


» 3 hafa sagt sína skoðun

12.12.2006 08:18:49 / teas

Jólaaa hvað ?

Hæ hæ ladies !
Jæja haldiði ekki að mér hafi tekist að komast hingað inn bara svona rétt sem snöggvast.
Hitti Brynu í Firðinum um helgina, frétti að þið kæmuð með jólasveininum niður um skorsteininn á aðfangadagskvöld.
Þið eruð svo hress.. hehe
Hver er svo uppáhalds jólamyndirnar ykkar stelpur ?

Mínar eru :

Christmas story
(1983) :D
Bad Santa er ótrúlega fyndin. en kannski ekkert gífurlega jólaleg.. :lol:
National Lampoons Christmas vacation

Og nú vantar mig bara fleiri ábendingar..


» 4 hafa sagt sína skoðun

12.11.2006 15:09:41 / water

Con gratzz!!

Til lukku Elva og Anna a.k.a. the Emilie twins. Vona að dagurinn ykkar hafi verið góður. Er búið að dekra við ykkur bæði utan heimilis og innan?? Eníveis, ekkert nýtt hér frekar en fyrri daginn... ég er bara heima að skipta á bleyjum. Nennti ekki einu sinni á 80's ball í gærkvöldi. kræst hvað mar er orðin latur eitthvað. Ég er búin að vera að treina mér að byrja á jólaundirbúningi en nú er ég allt í einu farin að hugsa að ég er bara að verða of sein!! Það er svoooooooo mikið eftir! hehe, dæmigert ég eitthvað. og by the by, við komum heim um jólin!!! Veeeeiiiiiii... lendum korter í jól (bókstaflega!) og förum aftur 4.jan svo nú er um að gera að vera snemma í því og ÁKVEÐA að gera eitthvað og helst bóka stund og stað svo maður sé fyrirfram upptekin og getur ekki fundið sér neitt annað að gera en vera með ykkur á þeim tíma. en allavegna, gleðilegan jólaundirbúning the Emilie style ;) Ýrus von spírus

» 3 hafa sagt sína skoðun

31.10.2006 18:12:56 / water

Takk fyrir síðast

Jæja, dagarnir mínir eru komir í fastar skorður. Vakna gefa borða pása gefa borða pása gefa borða elda borða gefa svæfa sofa... og svo byrjum við aftur... hehe eníveis, dagurinn í dag byrjaði ágætlega, ákvað að gera "ekki neitt" í morgun, var því í pj-unum (pyjamas), hitaði mér the, náði mér í mandarínur, piparkökudropa og súkkulaði ásamt smá broti af jólastaf og skellti White Cristmas myndinni í tækið og tók til við að gera "ekki neitt". Ætlaði að vera voða festive en það er alveg merkilegt hvað mynd með svona rosalega festive titil getur veri "ekki festive"... þemað var jú voða fallegt og hún byrjar vel og endar en á milli er bara fullt af dansatriðum og ekkert jólalegt! Þetta er annars mjög skemmtileg mynd og vel gerð en ég ákvað að Cristmas vacation er enn mín uppáhalds mynd. Ég er alveg að berjast við að byrja ekki að jóla-skreyta hjá mér strax. Held enn dauðahaldi í Halloween skrautið svona til að hemja hitt. Merkileg þessi löngun til að skreyta alltaf allt og alla... jæja, er að rjúka á næsta fund (a.k.a. kjaftaklúbb með fullt af kökum og góðgæti ;) ) góðar stundir ýrus

» 2 hafa sagt sína skoðun

26.10.2006 15:06:06 / littleb

Stutt og laggott.....

......stopp sem þú áttir hér heima Ýra, takk fyrir síðast.  Nú er bara að bíða fram að jólum:haha: Ætlaði að setja niðurtalningu til jólanna en gekk ekki, þ.a. ef þið kunnið á þetta þá væri flott að bæta þessu inn.

Anna bara með næturgesti í vikunni!  Nei, það var ekkert svæsið, bara Freyja & co (ég varð amk ekki vör við að e-ð væri í gangi).  Heimilinu áskotnaðist  forláta bók með kokteil-uppskriftum eftir þá heimsókn.  Svo það verður kannski e-r sex & the city fílingur í gangi á næstunni.........eða ekki.

Fór á kaffihús með Kristínu í fyrradag.  Sá lítið af Kristínu þar sem hún lenti því að það var keyrt utan í bílinn hennar.  E-ð stráksgrey nýkomið með bílpróf.  Ætla að sjá hvort það sama gerist við bílinn hennar Önnu núna á eftir, þ.e. ef hún er til í að láta bjóða sér upp á e-ð á Súfistanum í Hafnarfirði.  Það er svona að vera að keyra fólk fram og til baka, mar getur nú ekki annað en dekrað það aðeins á móti.

sláumst síðar


» 1 hafa sagt sína skoðun

20.10.2006 16:10:06 / teas

Ýra og prinsarnir á landinu..

Hæ hó, hæ hó... now of for Iceland they go..

Jæja þá erum við búnar að hittast einu sinni allar Emilíurnar..
Elva og Ýra hittust þó meira í alvöru barnaskraf daginn eftir.. hehe
Skírn núna á eftir og GÍFUUURLEEEEG spenna liggur yfir vötnum..
Hvað á litla yndið að heita ??????
Can't wait.
Kemur allt í ljós eftir um það bil klukkustund eða svo.. give or take.
Vonum bara að það verði ekki krakki sem öskrar yfir allt í miðri athöfn "Ljóti kall !!"
Og bendir á prestinn !
(Þetta kom fyrir í fjölskyldunni hans Atla)
Ætlaði nú að reyna að kenna Gústa þetta.. en málþroskinn er ekki alveg komin á þetta stig ennþá :$)
Og hver veit.. kannski er þetta bara huggulegasti prestur ... 8)

Jæja ætti að vera að vinna.. Anna var svo YYYYndisleg að ná í drenginn fyrir okkur.. Sparaði mér stórar áhyggjur og vesen þar sem ég þarf ekki að bruna inn í Hfj og svo strax inn í RKV aftur..
MUUUUNUUR.
jæja snúllurnar mínar..
Lifið heilar en ekki í dós.
Sjáumst eftir smá !

» 0 hafa sagt sína skoðun

07.10.2006 19:47:09 / Emily

Kaffihúsa kvitt

Hæ hó alles sammen. Er ekki planið að skrá allt sem við Emilíurnar gerum saman ?? Anna og Thelma eiga því margt eftir til að skrá niður ;o) ÉG (Elva) hringdi í Ýru síðustu helgi... Við spjölluðum í öruggglega 45 mínútur um barnseignir og annað skemmitlegt. Þau Fritz und "the boys" koma sem sagt til klakanst og nú er um að gera að fara að plana eitthvað skemmtileg saman ! Ég (elva) Anna og Thelma hittumst á Vegamótum í hádeginu í dag. Gústi var með í för. Við gúffuðum í okkur brunch af bestu gerð. Það var svosem ekki mikið markvert sem talað var um.. nema gamla konan sem fór í klippingu og sneplinum var snippað af !!! hugsið ykkur.. I'm doing my own hair from now on ! jæja verð að fara að bursta tennur og lesa fyrir Atla... (nei meina Gústa). Þannig að sjáumst síðar dömur !!

» 1 hafa sagt sína skoðun

22.09.2006 18:40:42 / water

heeey!

Hvað er að gerast hjá ykkur þarna hinumegin hafsins??? Það bara heyrist ekki frá ykkkur svo mikið sem músarlegt píp... 

Eníveis... nýjasta uppdatið héðan er "12 o'clock and all is well"  Okkur gengur bara alveg honky dory. Gutti litli er svo vær og góður og er á góðri leið með að koma sér í fína rútínu sem virðist ætla að henta okkur báðum bara vel.  Hann er svo vær og góður að það er varla að hann gráti þessi elska.  Hann bara umlar "eftir behöv" smá svona ónotar/óþolimóðar uml þegar hann er svangur og þægilegt kurr sem minnir á kissu purr þegar hann er sáttur og líður vel.  Alger draumur og bara eftir uppskriftinni hehe :o)

ég prufaði þó um daginn að smakka mexicóska súpu sem tendgaforeldrar mínir voru svo sniðugir að elda hérna, (nóta bene, ég með 2ja vikna gamalt barn og þeim "dettur í hug" að elda súpu með mikið af lauk, rauðum og grænum pipar og halapenjo í...) og þó ég hafi nú borðað í hófi og meira fyrir kurteisissakir (hún var bara svolítið góð nebblega) en það kostaði andvöku nótt fyrir mig með 5 bleyju skiputm!  hehe.. eins gott að hann er gott barn.  Hann varla vaknaði á milli.  Bara rétt til að totta smá og svo skjóta í bleyjuna. 

En það er verið að kalla á mig (eða réttara sagt brjóstin mín) svo það koma fleirri skemmtilegar sögur fljótlega. 

Og síðast en alls ekki síst, TAKK FYRIR SENDIGARNAR!!   Sindri er að fíla Kaprtein ofurbrók í tætlur og notar svso óróana óspart til að reyna að ná athygli bróður síns.  ferlega sætt.  Ástarþakkir fyrir okkur. 

later dudes!


» 1 hafa sagt sína skoðun

09.09.2006 16:00:48 / littleb

Í kaffi hjá Hótelstýrunni í auganu... hahahhahha

Elva og Thelma sýndu hug í verki  með því að Eigra til ágætist (eða gengið til góðs eins og gárungar hafa viljað kalla þetta... )

Það gekk bara vel að pranga út penger frá saklausum húsmæðrum og feðrum.

Elva náði næstum því að deyða eldri mann því honum brá svo hrikalega þegar ég stóð þarna á tröppunum þegar hann var á leiðinni út..

Hvað er nú eitt íslenskt mannslíf á við hugsanlega 4-5 Afrísk ? Og það börn !

Thelma byrjaði nú heldur glæsilega þegar hún hrundi í fyrstu tröppunni hjá fyrsta húsinu.. en "fall er fararheill" eins og sagt er.

Lentum líka í ævisögu aldraðs flugstjóra sem fær greinilega ekki margar heimsóknir lengur.. allavega sagðist hann hafa verið að fljúga til Grænlands og eitthvað með sjúkraflugsmenn..

Fengum svo góðar kökur og vont kaffi þegar verkinu lauk.

jamm jamm.. we're soooo goooood !

nú verður maður eiginlega að finna sér lítinn hund til að sparka í bara svona til að jafna þetta aðeins út.

Jæja garragó.. (þetta er bæ þe vei fröken Elva sem þetta ritar).

Æðisleg vídeó af littla dýrinu Ýra... varstu nokkuð að baða hann í klósettinu ?? híhí..

Þetta er nú meiri sætabrauðsdrengurinn :o)

Það er búið að kaupa gjöfina en það ætlar að vera eitthvað erfiðara að koma henni í flug.

Fröken Anna og Fröken Thelma biðja að heilsa.

Frýrnar Elva og Ýra segja pass..

bless.  


» 2 hafa sagt sína skoðun

31.08.2006 16:17:59 / water

This must be a ladie...

Það gerir engin svona nema alvöru dama, I'm a ladie!!  I am I am!!  Að láta bíða svona eftir sér er nú alveg eftir okkur dömunum... (veit að það er ekkert að marka því Gústi gil lét víst líka bíða á eftir sér)  Svo er hún alger teas...  ég vaknaði í nótt alveg að pissa á mig og ætlaði að standa upp en fann þá aðég var með geðveika samdrætti sem héldust alveg heillengi..  Ég hugsaði bara jei! loksins!!  Fékk nokkuð reglulega góða samdrætti í svolitinn tíma svo mín fór náttúrulega að veðrast öll upp, loksins komið að þessu. Fór yfir listann í huganum það sem þarf að muna eftir og taka með o.s.fr.  Svo fór ég að hugsa, þetta er nú ekki svo slæmt enn  svo ég hefði nú gott aðf því að reyna að hvíla mig vel fyrir átökin en auðvitað gekk það ekki.  Svo hættu samdrættirnir, ég ætlaði aldrey að ná að sofna fyrr en seint og um síðir.  og auðvitað gerðist svo ekkert meir.  Pirr pirr og ergelsi, barnið situr sem fastast.   Ekkert að gerast og allt með kyrrum kjörum í dag.

Við ma erum að verða uppiskroppa með hugmyndir að hvað er hægt að gera til að stytta sér stundir hérna þessa dagana, aumingja ma að þurfa að hangsa bara og hangsa svona híhí..  En við náðum þó allavegna að kíkja á Kvium sýningu í listasafninu hérna í dag.  Það var alveg rosa gaman. Hann er rosa furðulegur í myndunum sínum.  Örugglega vel sérvitur. 

Eníveis, ekkert meira að frétta í bili.. later ladies.

Ýrus and the alien


» 3 hafa sagt sína skoðun

26.08.2006 14:55:08 / juice

Hallllóóóóó döööömur

Well hello, I´m in the action now, oh oh oh I´m in the action .... Now!Anna hér

Gaman að geta tekið þátt í öllu skítkastinu, er reyndar sátt við að vera gellan sem er aldrei heima og á alla þessa fínu hluti.

Nú bíð ég spennt eftir að sjá nýja borðann sem Elva var að útbúa til að hafa yfir síðunni okkar, allt mjög artí fartí myndir í Sepia og af okkur dömunum en ekki Frikka dressed as a vúmann hehe

Er í góðu yfirlæti hérna hjá henni Thelmu minni og við vorum að komast inn á netið, eftir að ég rústaði eitthvað kerfinu á wireless netinu hér í húsi. :$

Jæja vonandi á maður eftir að eiga margar ánægjustundir hérna með ykkur myladies.

ykkar Anna


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2
Klukkan
Leitarbox

RSS tengill